1. Magadanskennaratími hjá Josy - 17. apríl 2002

Skrifað 28. apríl 2002, kl. 21:41

Upprifjun á grundvallar byrjendahreyfingunum í magadansi og punktar varðandi byrjendakennslu.

Í fyrsta tímanum sem maður kennir hverjum byrjendahópi ætti maður alltaf að dansa flottan dans fyrir hópinn til að sýna þeim að hverju þeir eru að fara að stefna og hvað þeir gætu lært á námskeiðinu.

Upphitun ætti að vera á milli 6-10 mín. Upphitun höfuðs og handleggja er mjög mikilvæg.

Andlit

Andlitið á alltaf að vera afslappað í magadansi, ekki stíft, það á ekki að sjást á andlitinu ef dansinn er erfiður. Það má auðvitað brosa, fallegu afslappaðu brosi, þegar það er viðeigandi, það má aldrei brosa á bakvið slæðu. Augnarráð á alltaf að vera töfrandi, glaðvært og seiðandi.

Stöður

Austurlensk staða; fætur og búkur neðan mittis snýr t.d. til hægri, vinstri fætinum er tyllt fram svo að einungis tærnar á þeim fæti snerta gólfið, búkurinn fyrir ofan mitti snýr 90 gráður til vinstri, eða fram, í átt að áhorfendum. Stöðuna er auðvitað líka hægt að gera til vinstri, en þá er hægra fæti tyllt fram.

Staðan er einnig mikið notuð án þess að snúa búknum fyrir ofan mitti, þá skiptir ekki höfuðmáli í hvaða átt fæturnir og búkur neðan mittis snýr.

Í nánast öllum stöðum þurfa hné að vera beygð.

Hendur

Hendur hreyfast alltaf mjúkt og fallega, sama hvað mjaðmirnar eru að gera.

Austurlenskar hendur; þumall og langatöng snertast næstum, hinir puttarnir vísa uppí loftið. Höndum oftast, í þessarri stöðu, snúið í hringi við úlnlið.

Þegar höndum er snúið, eru mjúkar handleggja-og axlahreyfingar mjög mikilvægar. Handleggir og axlir hreyfast alltaf hægt og mjúkt.

Önnur handahreyfing er það sem ég kalla "lirfu"-hreyfinguna, en hún er þannig að hendurnar líta svolítið út eins og að þær skríði afturábak, eða séu að strjúka einhverju. Þær hreyfast í bylgjuhreyfingu þannig að handabakið og fingurnir bylgjast upp og niður sitt á hvað en fingurnir krullast út þess á milli.

Ein útfærsla á að snúa höndum í austurlenskri handastöðu, er að blanda saman við það "lirfu"-handahreyfingunni, svo að mismunandi hreyfingarnar komi til skiptis ... það lítur út eins og: snúa, strjúka, snúa, strjúka, ... o.s.frv.

3 handastöður eru notaðar fyrir ofan höfuð, þannig að handleggir myndi tyrkneskt þak-form (kúpul, næpu); beint upp með lófum saman, snúnar hendur með lófum saman og beint upp með handabökum saman.

Mjög dæmigerð handleggjastaða þegar höndum er snúið, er þegar annar handleggurinn vísar upp í ca. höfuðhæð en hinn niður í ca. mjaðmahæð.

Nokkrar dæmigerðar handleggjastöður:

  • önnur hendin á eyra og hin beint til hliðar
  • önnur hendin beint upp og hin beint til hliðar
  • önnur hendin á mjöðm og hin á eyra
  • önnur hendin á eyra og hin hylur maga
  • hendur sitthvorum megin við mjaðmir, en snerta þær ekki
  • ...o.fl.

Ef önnur hendin er staðsett á eyra eða nálægt höfði, þá á ekki að horfa á hana, heldur undan henni t.d. á það sem hin hendin er að gera.

BRJÓST

Hrista brjóst, "shimi", gert með því að snúa efri hluta búksins hratt, hægri öxl fram, vinstri öxl fram, hægri öxl fram....

Í lokatakti spors getur verið fallegt að enda á brjóstum þannig að það komi eins og hnykkur í hreyfinguna og brjóstin detta eitt augnarblik, þetta er gert með því að: rétta úr baki, gera það hokið og rétta aftur úr, allt á einu augnarbliki.

Mjaðmir - "basic egypt"

Úr austurlesnku stöðunni er hægt að gera margar mismunandi mjaðmahreyfingar. Ein þeirra er "basic egypt", þar sem rétt er úr hné þess fótar sem er tyllt fram og það beygt aftur til skiptis, svo að mjöðmin hreyfist upp og niður. Í öðru hverju skipti sparkar maður litlu sparki innávið. Í sparkinu skal ávallt vera rétt úr ristinni.

"Basic egypt" er hægt að gera á tveimur punktum, þ.e. að hliðra fætinum aðeins í öðruhvoru spori og svo til baka í hinu hverju. Þá kemur litla sparkið í fremra sporinu.

Önnur útfærsla er að færa fótinn ekki til, en bara mjöðmina í hálfgert "U" úr einum punkti í annan og tilbaka.

Enn önnur útfærsla er að færa ekki fótinn en fara með mjöðmina í gegnum átta-punkta-hring.

Mjaðmir - áttur

American eight
hægri og vinstri mjöðm skiptast á að gera hringi framávið; sú hægri teygist aftur, til hægri og fram, þá tekur sú vinstri við, teygist aftur, til vinstri og fram.
Egyptian eight
hægri og vinstri mjöðm skiptast á að gera hringi afturábak; sú hægri teygist fram, til hægri og aftur, þá tekur sú vinstri við, teygjist fram, til vinsti og aftur.
Maya
hægri og vinstri mjöðm skiptast á að gera hringi niðurávið; sú hægri fer upp (hægri fótur á táberg), teygist til hægri, og niður, þá tekur sú vinstri við og fer upp, til vinstri og niður.
Opposite maya
hægri og vinstri mjöðm skiptast á að gera hringi uppávið; sú hægri teygist til hægri, upp (fótur á táberg) og niður í upprunalega stöðu, þá tekur sú vinstri við og teygist til vinstri, upp og tilbaka í upprunalega stöðu.
Side eight (Egyptian)
hægri og vinsti mjöðm skiptast á að gera hringi afturábak eins og í "Egyptian eight", nema úr austurlensku stöðunni.

Muna að áttur er hægt að gera hægt eða hratt og litlar eða stórar.

MJAÐMIR-hringir

Gera litla hringi með mjöðmum; smábreidd á milli fóta, teygja mjaðmir til vinstri, fram, hægri, aftur, vinstri ... gera misstóra og mishraða hringi.

Stór hringur; axlarbreidd á milli fóta eða meira, teygja mjaðmir til vinstri, mikið fram, hægri, mikið afturábak svo að bak sé beint og lárétt (hendur hylja brjóst), teygja mjaðmir svo aftur til vinstri og enda uppréttur í fallegri stöðu.

Mjaðmir - annað

Beygja hné til skiptis í takt við tónlist þannig að mjaðmir hreyfast upp og niður til skiptis. Þessa hreyfingu er hægt að gera mjúklega eða harkarlega, hratt eða hægt, í litlum eða stórum hreyfingum.

Vagga mjaðmagrind fram og aftur í takt við tónlistina; fetta sig og spenna fram mjaðmirnar til skiptis.

Teikna "U" með mjöðmunum; maður snýr fram og beygir bæði hné, réttir svo úr öðru hnénu og teygir mjöðmina til hliðar í þá átt, beygir bæði hné, réttir svo úr hinu og teygir mjöðmina til hinnar hliðarinnar og svo koll af kolli: hægri, miðja, vinstri, miðja, hægri, miðja ...

Útfærsla af "U"-hreyfingunni er að hökta í hreyfingunni, hökta t.d. í þremur töktum til hægri og svo þremur aftur til vinstri (eða eins oft og við á við viðkomandi tónlist)

"Camel"-hreyfingin er gerð úr austurlensku stöðunni. Búkurinn hreyfist mjúklega eins og slanga í S-hlykkjum fram og aftur. Þ.e. mjaðmir þrýstast fram og brjóstkassi aftur; og mjaðmir þrýstast aftur og brjóstkassi fram, til skiptis.

Maga-"shimi"

Hrista maga, "shimi", með því að beygja hægra og vinstra hné hratt og lítið, sitt á hvað. Til að auðvelda hreyfinguna skal halla mjöðmum örlítið fram og slaka á rassvöðvum.

Einnig er hægt að hrista með því að beygja bæði hné í einu mjög hratt.

Og hrista með bara öðrum fæti, þá er það stuðningsfóturinn sem beygjist og réttist hratt og framkallar hristinginn, en hinum er tyllt til hliðar (td. í austurlenska stöðu).

Þannig er einnig hægt að ganga með "shimi" í hverju spori.

Spor / ganga

Ganga um með "basic egypt", þannig að hægri tá fer fram, rétt úr hægra hné, mjöðmin fer upp og niður, hægrifótur tekur skref og þungann og vinstri táin fer fram og gerir það sama og hægri gerði.

Samskonar afturábakskref gerist í aðeins breyttri röð. Vinstri fótur tekur skref afturábak og tekur á sig þungann, hægri táin er þá frammi, mjöðmin fer upp og niður og hægri fóturinn tekur svo skref afturábak, og þá er vinstri táin frammi og gerir það sama og hægri gerði.

Aðra gönguhreyfingu er hægt að gera með því að taka skref til hliðar, færa allan þunga á fótinn sem tók skrefið og ýkja í leiðinni mjaðmahreyfinguna í þá átt. Þannig er hægt að taka til dæmis nokkur skref til beggja hliða til skiptis eða ganga fram á við eitt eða tvö skref á ská til vinstri og hægri til skiptis.

Þetta spor skal gera á tám (ekki tábergi heldur tám!) og slaka á rassvöðvum í leiðinni. Einnig er hægt að bæta við "shimi" í sporin.

"Camel"-göngulagið er hægt að gera, hafi maður náð góðum tökum á "Camel"-hreyfingunni. Þá eru tekin nokkur spor með sama fæti (alltaf með hægri og vinstri fylgir bara á eftir, eða öfugt) og "Camel"-hreyfingunni beytt í hverju spori.

Eitt spor er mjög algengt, og er hægt að gera það í allskyns útfærslum. Það er þannig að tekið er skref fram og aftur með hægri fæti, en sá vinstri færist ekki úr stað; stigið er framávið með hægri fæti, líkamsþunginn færður á hægrifót og mjaðmir ýktar til hægri, þá er stigið í vinstri fót og líkamsþunginn færður á hann og mjaðmir ýktar til vinstri, svo er tekið skref afturábak með hægri, líkamsþunginn færður á hann og mjaðmir fylgja eftir. S.s. stigið með hægri fram, stigið í vinstri, stigið með hægri aftur, stigið í vinstri, hægri fram, vinstri, hægri aftur, vinstri .... Þetta spor verður fallegast þegar það er gert á tám.

Ein útfærla af þessu spori er gera það alveg eins og er lýst hér fyrir ofan en að krossa alltaf í fremra sporinu sem hægri fótur tekur fram fyrir þann vinstri.

Önnur útfærsla er að taka sporið beint fram og aftur á tám, en bæta í það "shimi" á leiðinni fram, aftur eða báðar leiðir.

Hægt er að nota allar átturnar í það að ganga til hliðar.

Dansar

Mjög mikilvægt er annaðhvort að þekkja tónlistina sem maður er að dansa við mjög vel, eða að vera naskur á að hlusta á hana og geta nánast heyrt hvað kemur næst í laginu áður en það kemur.

Hlusta þarf vel á tónlistina sem dansað er við til að vita hversu löng eða stutt spor eiga að vera eða til að geta ákveðið hvar á að setja t.d. spor m/ áherslu.

Annað

Góð handastöðu-upphitun: Handastöðu er breytt í takt við tónlistina sem er notuð til upphitunar.

  • hendur beint fram með lófa niður
  • snúa lófum upp
  • hægri hendi á eyra og vinstri hendi beint til vinstri
  • vinstri hendi á eyra og hægri hendi beint til hægri
  • hægri hendi beint upp og vinstri hendi beint til vinstri
  • vinstri hendi beint upp og hægri hendi beint til bægri
  • hægri hendi á mjöðm og vinstri hendi á eyra
  • vinstri hendi á mjöðm og hægri hendi á eyra.
  • (Endurtaka 1-8)

Svör frá lesendum (1)

  1. Ída svarar:

    Í raun er þessi síða meiri háttar. Ég lofa mér í hverjum danstíma og æfa mig heima fyrir næsta og svo framvegis.Svo kemur maður heim og strákarnir (2 og 8 ára) taka einhvern veginn allan tímann. Þeir ganga náttúrulega fyrir! En magadansinn er frábær hreyfing og tónlistin yfirleitt dásamleg, Kiss lagið fer eitthvað í pirrurnar á mér og nema maður fái ekki að vera með, sökum brussugangs, þá sé ég ekki annað en ég verði þarna eitthvað áfram. Kveðja, Ída

    23. mars 2004 kl. 22:11 GMT | #

Þessum svarhala hefur verið lokað. Kærar þakkir til þeirra sem tóku þátt í umræðunni.


 

Flakk um vefsvæðið



 

 

Yfirlit yfir þetta skjal

(Atriðin í listanum vísa á ákveðna kafla ofar á síðunni.)