Fyrst byrjendatíminn í nýju námskeiði, aðstoðarkennsla - 23.apríl 2002
Við Josy kenndum saman byrjendanámskeið rétt eftir að hún eignaðist Agnesi, hér eru glósur úr fyrsta tímanum í nýju námskeiði.
Josy byrjaði á því að hringja í mig og tilkynna mér að hún mundi mæta hálftíma of seint, útaf barninu, og sagði mér að Rosanna ætlaði að taka upphitunina fyrir sig og bað mig að byrja að fara í gegnum fyrstu grunnatriðin í magasansi í tímanum þangað til að hún mætti.
Rosanna hitaði upp.
Ég sagði stelpunum í tímanum hverjar við Rosanna værum, sagði þeim aðeins frá Josy og svo þjóðsögunum í kringum uppruna magadans, tengingu hans við frjósemi og sagði þeim að passa sig ef þær viltu ekki verða þungaðar.
Svo fór ég í gegnum:
orient position, orient hands, orient arms, orient pos.+hands+arms, egyptian hands, egyptian arms (önnur hendi á höfuðið), american eight, egyptian eight, maya, opposite maya, side eight, basic egypt - grunnhr., basic egypt - m/ tásparki, basic egypt - 2ggja punkta + spark basic egypt - ganga fram, basic egypt - ganga aftur.
Þá mætti Josy. Hún byrjaði á því að sýna nemendunum rosalega flottan magadans, í næstum 20 mínútur.
Svo fór hún í gegnum:
- handleggjahreyfingar, handastöðurnar þrjár fyrir ofan höfuð
- shimi - brjóstkassa
- shimi I (færa þunga í U-i á milli fóta)
- shimi II (færa þungann eins og í shimi I, nema alltaf í 2 töktum)
- shimi hratt - slaka á rassvöðvum
- basic egypt - fram og tilbaka sporið - á tám - í stað
- basic egypt - fram og tilbaka sporið - á tám - í hring
- basic egypt - krossaða fóta sporið - á tám - í stað
- basic egypt - krossaða fóta sporið - á tám - til hliðanna
- shimi maga - hrista m/ báðum fótum á víxl
- shimi maga - hrista m/ báðum fótum saman
- shimi maga - hrista m/ öðrum fæti
- magi út og inn í takt við tónlist
- mjaðmir í U til hliðanna, mjaðmir í U fram og til baka
- mjaðmir í litla hringi, mjaðmir í stóra hringi
ganga lengdina á salnum fram og tilbaka:
- basic egypt - ganga fram, basic egypt - ganga aftur
- ganga m/ U-skásporunum - 1 t.h, 1 t.v, 1 t.h, 1 t.v...
- ganga m/ U-skásporunum - 2 t.h, 2 t.v, 2 t.h, 2 t.v...
- ganga til hliðar 1/2 opposite maya-U spor
"important when you dance: work your hands, never stop your hands"
Josy sagði ennfremur:
"music rules and translations:
- when you hear slow music = you do slow eights, slow hips, soft hands
- when you hear drums = you move your hips
- when there is an emphasis beat (bummmm bummmm) in the end of something = you move your stomache in-out
- when you hear the fast drums (finger drums) = you do a shimi, shake the stomache
- when you hear bells = you do a shimi of the upper body (breasts)
- tabla means = drum music
- traditional music means = slow music, like for eights"
"bellydance is personal - everybody has a different style"
Josy spilaði því næst alls konar tónlist í ca. 20 mín og spann upp einfalda dansa úr grunnsporunum sem farið var í gegnum í tímanum og nemendurnir áttu að reyna að fylgja henni eftir.
Magadansglósur Parvönu



