2. Magadanskennaratími hjá Josy - 24. apríl 2002

Skrifað 29. apríl 2002, kl. 10:11

Framhald á upprifjun á byrjendahreyfingum, og nokkrir nýjir punktar.

MJAÐMIR

Standa á tábergi með annan fótinn framar en hinn og færa þunga mjaðmanna fram og til baka - eins og að vagga þeim fram og aftur og þunginn færist á milli fremri og aftari fótar.

Útgáfur af hreyfingunni

  • gera shimi þegar mjaðmir eru á leiðinni fram, en ekki á leiðinni aftur
  • gera shimi þegar mjaðmir eru á leiðinni aftur, en ekki á leiðinni fram

GANGA

Spor sem byggist nánast á því sama og valhopp. Hoppa pent og létt á vinstri fæti, á meðan sveiflast hægri fótur í hálfmána framávið, þeas. ((hægrifótur er aftari fótur til að byrja með fer svo til hægri (rétt úr hægri ristinni og hægra hnénu) og fram og verður þá orðinn fremri fótur)). Hoppa pent og létt á hægri fæti, á meðan sveiflast vinstri fótur framávið .....

Í þessu spori reynir maður að láta pilsið (sé maður í slíku) sveiflast fallega með fætinum sem tekur skrefið. Sporið er hægt að taka framávið og afturábak.

SLÆÐUR

Josy fór í gegnum allskyns nýjar hreyfingar með slæðum, en ég veit ekki hvernig ég á að koma þeim í prent, þetta voru hreyfingar sem byggðust á tilfinningum og því hvað var að gerast í tónlistinni hverju sinni.

Eitt sem hún benti á var að við megum vera miklu afslappaðri með slæðurnar, ganga meira um með þær, flæða með þeim og vera soldið "sniðugar" í að hreyfa þær með okkur. Meira er erfitt að segja í orðum.

Í þessum tíma fórum við annars ekki í margt nýtt. Við rifjuðum upp úr síðasta tíma og Josy reyndi að kenna okkur enn einu sinni að hlusta á tónlistina með líkamanum ... en það mun ganga eitthvað hægt hjá henni sýnist mér, við erum svo "slow" á því sviði, finn það allavegana sjálf að ég er mjög óörugg með það hvað ég má gera hvenær, aðallega þegar hún er að fylgjast með. Ætli það verði ekki heimaverkefnið mitt, að æfa mig að dansa óundirbúið við tónlist að handahófi.


 

Flakk um vefsvæðið



 

 

Yfirlit yfir þetta skjal

(Atriðin í listanum vísa á ákveðna kafla ofar á síðunni.)