Ný spor - 7.apríl 2003

Skrifað 8. apríl 2003, kl. 14:08

Er að byrja að dansa aftur eftir svolítið hlé, það er fullt sem ég þarf að ná upp ... ég ætla samt að stefna að því að ná öllu upp, semja dans og keppa í magadanskeppninni í júní.

Tveir nýjir dansar: körfudansinn og kertadansinn.

Ný shimi, mjög erfið:

  • Side-shimi: hægri mjöðm niður og til hægri, vinstri mjöðm niður og til vinstri, til skiptis eins og "L". Hratt. Fyrst gert jafnfætis með fætur flata á jörðunni, svo á tábergi, svo gengið fram og tilbaka með hreyfingunni eða til hliðar. Þetta spor er grunnur að 90% af magadansi.
  • Mjaðma-shimi: standa með báða fætur flata á jöðinni og hreyfa mjaðmir framávið í hálfhring til hægri og sparka lítið spark með vinstri, fara svo til vinstri með mjaðmir og sparka með hægri. Þegar það er sparkað þá fer mjaðmagrndin aftur, eins og maður sé að fetta sig. Þessi hreyfing er líka gerð mjög hratt.

Dansar sem voru dansaðir í kvöld:

  • Körfudansinn
  • Kertadansinn
  • Kisskiss
  • Prince of Cairo
  • Fatima

"Show"-punktar:

  • Ganga með tilþrifum á ská til hægri á tám með hvh og hnykkja svo efri búk, draga sig svo hægt tilbaka og ganga til vinstri með vhv og hnykkja búknum eins.
  • Þegar það kemur skyndilega pása í tónlist og hún byrja svo rólega aftur: sveifla höfðinu og lausu hárinu fram þegar tónlistin hættir og reisa sig svo rólega upp þegar hún byrjar aftur, nota framhandlegg til að koma hárinu afturá bak, gera maja á meðan.

 

Flakk um vefsvæðið



 

 

Yfirlit yfir þetta skjal

(Atriðin í listanum vísa á ákveðna kafla ofar á síðunni.)