Ný spor - 8. og 10. apríl 2003

Skrifað 11. apríl 2003, kl. 12:51

Shimiæfing sem var alveg að fara með mig, það er svo gaman þegar maður lærir eitthvað erfitt!

Nýju sporin, er eitthvað sem ég þarf pottþétt að vinna í, en þau eru fimm talsins:

  • Shimi side - sem ég lýsti í síðustu færslu
  • Shimi Zohar - sem er eiginlega eins og shimi side, nema þegar hægri mjöðmin fer til hliðar, þá fer sú vinstri beint upp.
  • Shimi Mona - gert á tám, með annan fótinn framar en hinn, stigið í fremri fótinn og svo í þann aftari með shimi.
  • Egg - sem ég lýsti í síðustu færslu, en kallaði mjaðma-shimi.
  • Little egg - sem er eins og Egg, nema fæturnir eru saman, og hreyfingin þess vegna mjög lítil.

Verð líka að æfa venjulegt shimi alveg grimmt, ég er mjög slök í því! Þegar ég hef náð því á eitthvað skrið, þarf ég að reyna að hreyfa mig um og gera shimi á sama tíma.


 

Flakk um vefsvæðið



 

 

Yfirlit yfir þetta skjal

(Atriðin í listanum vísa á ákveðna kafla ofar á síðunni.)