Arabísku kvöldin á Kaffi List

Skrifað 30. ágúst 2003, kl. 11:52

Nú eru búin tvö af þremur arabískum kvöldum sem við í Magadansfélagi Íslands dönsum fyrir á Kaffi List. "So far, so brilliant" ... þetta eru búin að vera alveg mögnuð kvöld, rífandi stemning, geggjaður matur og ofboðslega góður andi í dansara-hópnum.

Síðasta kvöldið verður í kvöld og eins mikið og ég kveið fyrir að stíga á svið í gærkvöldi, þá get ég ekki beðið þangað til í kvöld, upplifunin var svo sterk í gær, þrátt fyrir tæknilega örðugleika í miðju lagi og allt ... ég held að ég gæti alveg orðið "hooked" á þessarri vellíðan, svona "magadans"-isti!

Ég óska þess bara að stemningin frammi á kaffihúsinu og inni í búningsherbergi verði jafngóð í kvöld og hin kvöldin.

Takk stelpur, Safyra, Heiða Malika, Salena, Aziza, Chrystal Zohar, Anna Dóra, Jamilla Mavis, Coral Hayal, Kata Melita, Shaina Nur og Dagbjört ... þið eruð yndislegar ... og Josy Zareen, þú ert gyðjan okkar!


Svör frá lesendum (1)

  1. Anna Dóra svarar:

    Þakka góða strauma frá síðunni þinni og tek undir þá um leið,þ.e. þakka ykkur öllum fyrir kvöldin þrjú og allt sem þeim fylgdi,hlakka til að hitta ykkur næst. k.k. Anna Dóra/rophaus.

    31. ágúst 2003 kl. 05:04 GMT | #

Þessum svarhala hefur verið lokað. Kærar þakkir til þeirra sem tóku þátt í umræðunni.


 

Flakk um vefsvæðið



 

 

Yfirlit yfir þetta skjal

(Atriðin í listanum vísa á ákveðna kafla ofar á síðunni.)