Loforð
Næst á dagskránni hjá mér hérna á síðunni, fyrir þá sem gætu verið orðnir örvæntingafullir, er að skrá niður sporin að tveimur fyrstu dönsunum sem ég lærði hjá Josy, "prince of cairo" og "fatima", en þeir eru enn kenndir í byrjendatímum hjá Josyju í dag.
Ég mun einnig reyna að tína in allt hérna sem við erum að læra fyrir sýninguna, auk þess sem við erum að stúdera annars í tímum þessa dagana, nýju, flóknu skrefin og samsetningarnar ... ég fullvissa ykkur um að þetta verður hér allt saman innan tíðar. Þið verðið að afsaka að ég er ekki sneggri í þessu ... ég er svo svakalega upptekin þessa dagana, lofa að reyna að vera duglega að skrifa samt sem áður.
Magadansglósur Parvönu



