Magadanshúsið

Skrifað 19. október 2003, kl. 11:48

Við fórum nokkrar í gær til að kíkja á húsnæðið sem "Magadanshús Josy Zareen" opnar í eftir viku (Skipholti 21) ... og það er ekkert smá flott.

Josy og Hinrik eru rosalega dugleg og metnaðarfull við að gera það fínt, en húsnæðið verður alveg sniðið fyrir magadanskennsluna, -verslunina og sýningar.

Í dag ætla ég að hjálpa Josyju með einhverja smáhluti, versla og mála, mér finnst svo gaman að hjálpa til við þetta og finnast ég eiga kannski einhvern smáþátt í þessu frábæra framtaki.

Ég er svo spennt yfir þessu öllu saman og hlakka rosalega til að mæta í Magadanshúsið í næstu viku og byrja að kenna og nema þar.


 

Flakk um vefsvæðið



 

 

Yfirlit yfir þetta skjal

(Atriðin í listanum vísa á ákveðna kafla ofar á síðunni.)