Spennan eykst!
Jæja, þá fer að styttast í það að Magadanshúsið opni og ég er orðin svo spennt!
Fyrr en varir verður húsið fullt af glæsilegum og hamingjusömum konum á öllum aldri og af öllum stærðum og gerðum, sem eiga það allar sameiginlegt að vera að leggja stund á magadans, þokkafyllsta áhugamál sem ég hef kynnst.
Þau Josy og Hinrik hafa verið undanfarna daga á fullu að byggja upp magadanshúsnæðið og starfið sem fara mun fram innan veggja þess, með hjálp fjölda vina og kunningja, og innan tíðar verður þar tilbúið frábært æfingahúsnæði fyrir magadansiðkendur með öllu því sem iðkuninni fylgir.
Ég er alveg ótrúlega spennt yfir þessu öllu saman að ég held varla vatni. Ég hlakka svo til að byrja að æfa þarna, mæta snemma í tímana svo að ég geti tyllt mér í sófahornið og spjallað við aðra nemendur og skoðað búninga, skartgripi og geisladiska í versluninni. Komið í video-tímana sem verða vikuleg stúdía á dönsurum útí heimi, mætt í vikulega aukatímana og hitt nemendur sem ég mundi annars ekki hitta strax o.fl. o.fl.
Ég veit að það er stór hópur nemenda sem er alveg jafnspenntur og ég er, enda eftirvæntingin og tilhlökkunin orðin mikil yfir því að geta numið dansinn í þægilegu húsnæði sem hentar okkur og að geta hagað æfingatímunum eftir okkar þörfum.
Spennan eykst, og innan þriggja daga verðum við komnar með frábæra aðstöðu til að sinna aðaláhugamáli okkar flestra ... ég get varla beðið!
Magadansglósur Parvönu



