Fyrsta vikan á enda

Skrifað 31. október 2003, kl. 07:25

Jæja, þá er fyrsta vikan hjá Magadanshúsinu næstum á enda ... en hún hefur gengið alveg vonum framar.

Ég kenndi sjö tíma í vikunni og verð að segja að ég er nú bara mjög stolt af þessu öllu saman. Nemendafjöldinn er mikill, salurinn er frábær (dansvænn og lekalaus) og búninga-og sturtuaðstaðan til fyrirmyndar. Stemningin í tímunum er rosalega góð, það eru allir svo ánægðir með þetta.

Nú um helgina mun verslunin síðan rísa í anddyrinu og von bráðar kemur sófahorn nemenda þar uppi líka svo að við getum aðeins sest niður og slakað á saman, fyrir og eftir tímana, og kynnst betur.

Þá verður þessu byrjunarferli lokið við opnun Magadanshússins og það eina eftir að halda opnunarteiti í tilefni þess ... : )


 

Flakk um vefsvæðið



 

 

Yfirlit yfir þetta skjal

(Atriðin í listanum vísa á ákveðna kafla ofar á síðunni.)