Alltaf eitthvað nýtt!

Skrifað 23. mars 2004, kl. 02:26

Við lærðum svo fallegar æfingar í kvöld í "El Andaluz"-stílnum, sem er samsuða úr Arabesque dönsum og spænskum, stíllinn er mjög hreinn og mjög nothæfur í magadansi. Ég veit að Josy er að kenna okkur þetta til að freista þess að mýkja handahreyfingarnar hjá flestum okkar ... handahreyfingarnar í þessum dansstíl mynna á Thai-Chi!

Við lærðum EITT spor, sem er meira eins og heill dans (16 spor), og eigum að æfa það heima, kunna það og geta dansað það við hvaða tónlist sem er ... skildist mér.

  • skref með hægri fæti (hendur: opna faðminn uppávið mjúklega),
  • skref með vinstri (hendur eins),
  • skref með hægri (hendur mjúklega út til hliðanna),
  • snúa í heilan hring til vinstri (byrjum með hægri fót krossaðan framfyrir og endum með þann vinstri krossaðan þannig)
  • standa á vinstra fæti og krækja þeim hægri aftan í hnéspótina á hinum og halla sér til vinstri (hendur beint upp og baugfingur saman),
  • hægri fóturinn í gólfið (sveifla hægri hendi mjúklega til hliðar),
  • krossa hægri fót afturfyrir þann vinstri og halla sér til vinstri (hendur bogakenndar upp og handabökin saman (við úlnliðina))
  • snúa í 3/4 hring til hægri og enda með hægri hliðina í spegilinn og horfa upp (hendur á bakvið rassinn)
  • horfa upp, horfa niður
  • skref með vinstri (sveifla höndum mjúklega með búknum, vinstri framfyrir)
  • skref með hægri (sveifla höndum mjúklega með búknum, hægri framfyrir)
  • tvo spænska hringi, brjóstkassinn útþaninn og ákveðnar höfuðhreyfingar
  • hægri fótur frammi, kikna í hnjánum og fara strax aftur upp, (hendur upp líka ...), teikna svo stórt, mjúkt akkeri með höndunum á meðan við bökkum með þungann aftur á vinstri fót og ljúkum skrefinu góða.

Við prufuðum líka sýnishorn af indverskum dansi í lok tímans, (sem er ekki magadans, beint) það var svona meira til gamans gert, það er þokkalega súr dans, indverskur dans er skrýtinn!

Gerðum margt annað spennandi í tímanum, en ég man það ekki núna af völdum þreytu. Þess má þó geta að við fórum í Thai-Chi um daginn og þær okkar sem vorum alveg óreyndar í þeirri grein, áttuðum okkur á því hvað Josy átti við með því að suma vantaði mýkt í hreyfingarnar!

Uppgötvun dagsins: Mér finnst El Andaluz-stíllinn vera flottur og mig langar ýkt að ná að valda honum af öryggi og þokka.


 

Flakk um vefsvæðið



 

 

Yfirlit yfir þetta skjal

(Atriðin í listanum vísa á ákveðna kafla ofar á síðunni.)