Harem sýningin
Ohhh ... ég missti af magadanssýningunni í Magadanshúsinu í gær, mig langaði svo að fara á hana.
Ég veit að þær Jamilla og Shaina Nur sömdu dans fyrir kvöldið sem mig langaði svo að sjá enda frumraun þeirra í dúett-dansasmíðum, svo ætlaði Chystal að dansa í nýja geðveika egypska búningnum sínum, þær Orial og Zena ætluðu líka að dansa saman Evil-dansinn (sem þær lærðu fyrir fáránlega stuttu síðan og náðu strax) og síðan ætlaði Josy að sýna nýjasta Khalleji-dansinn sem hún samdi ... alveg týpískt fyrir mig að missa af annarri eins veislu.
Kvöldinu eyddi ég með gellunum á skrifstofunni í LHÍ á "starfsmannafundi" úti á Álftanesinu og tók náttúrulega búninginn og tónlistina með mér og tróð upp og bætti hálfpartinn upp fyrir að hafa ekki komist á sýninguna!
Ég vona að sýningin hafi tekist vel í alla staði og að það hafi verið góð stemning. Ég mæti pottþétt næst (enda mun ég dansa þá!).
Góðar stundir.
Magadansglósur Parvönu



