Mikið um að vera!

Skrifað 5. apríl 2004, kl. 11:51

Nú þegar komið er vor í loftið, fuglarnir byrja að söngla, flugurnar eru komnar á stjá og vorlaukarnir spretta upp, eykst orkan, lífsgleðin og hugmyndaflæðið og allt fer á fullt.

Þetta á náttúrulaga ekki síst við okkur dansmeyjarnar.

Síðasta helgi var gott dæmi: elítuveisla á laugardag, 4 tíma æfing á sunnudag og venjuleg æfing í kvöld ... og þetta er bara byrjunin!

Það er svo margt um að vera nú í vor og sumar. Í þessarri viku hefjast ný námskeið, næstu helgi er áramótaveisla Tælendingafélagsins (og páskar), svo halda æfingarnar fyrir keppnina áfram, og keppnin sjálf með tilheyrandi herlegheitum er svo í maí! Og ekki má gleyma Egyptalandsförinni í júní ....

Þessi tími er svo spennandi þegar allt er að fara á fullt og spennan og eftirvæntingin rafmagnar loftið.

Gleðilegt vor!


 

Flakk um vefsvæðið



 

 

Yfirlit yfir þetta skjal

(Atriðin í listanum vísa á ákveðna kafla ofar á síðunni.)