Apríl-sýningin
Apríl hareem-sýningin var í Magadanshúsinu í gærkvöldi og hún gekk bara vel ... held ég.
Ég er reyndar ekki dómbær á það, þar sem að ég var nánast allan tímann inni í búningsherberginu að deyja úr stressi. Ég ákvað nefnilega að dusta rykið af slæðunum góðu og dansa fiðrildadansinn minn frá því í fyrra ... en náði ekkert að rifja dansinn upp eða æfa mig (hef ekki dansað við lagið síðan í ágúst!).
Svo að ég er náttúrulega ekki sátt við eigin frammistöðu í gær, mér fannst rýmið vera of lítið fyrir dansinn og ég hefði átt að velja mér litríkari slæður, sleppa þeim eða hreinlega velja mér lag sem ég er vanari ... en lengi má læra af mistökum sínum, verst fannst mér þó hvað ég stressaði sjálfa mig upp fyrir sýninguna þannig að ég naut þess ekki að dansa eins og ég geri venjulega. Mér skilst nú samt, sem betur fer, að fólki hafi ekki alveg dauð-leiðst atriðið mitt!
Ég veit það allavegana að ég ætla að æfa mig fullt áður en ég sýni næst svo ég geti notið dansins sjálf ... fátt er bjánalegra en dansari sem líður illa þegar hann er að dansa!
Ég náði þó að sjá endann á sýningunni þegar Josy dansaði, hún var náttúrulega frábær eins og alltaf!
Magadansglósur Parvönu



