Gömlu dansarnir
Ég var á leiðinni í tíma í gærkvöldi þegar kom upp sú staða að ég yrði að kenna tímann fyrir Josy (Bruno er enn á spítalanum!) ... þannig að ég ákvað að við rifjuðum nú bara upp dansana sem við höfum lært alveg frá upphafi.
Tíminn var mjög skemmtilegur og alveg nauðsynlegur. Bæði rifjuðum við upp dansa sem margir voru löngu búnir að gleyma að þeir kynnu og svo jók það auðvitað sjálftraust allra að átta sig á því hvað við kunnum marga dansa ... við náðum ekki einu sinni að dansa í gegnum alla gömlu dansana í tímanum.
Við þurfum endilega að taka fleiri svona upprifjunarsyrpur af og til ... maður gleymir því bara stundum í allri gleðinni við að vera stöðugt að læra eitthvað nýtt!
Kristína (ljóskan)
Magadansglósur Parvönu



