Menningarnótt

Skrifað 18. ágúst 2004, kl. 11:08

Nú líður senn að Menningarnótt. Þá verður mikið um dýrðir í borginni allri og hún mun iða af lífi og fjöri ef ég þekki hana rétt.

Við stelpurnar sem unnum sem Magadansdísir í sumar, munum troða upp í Hinu Húsinu, en það verður lokauppákoma Magadansdísanna á vegum Hins Hússins í sumar.

Eins veit ég að hópurinn Shams Al Amar mun sýna í Iðnó, og ætla ég að reyna að komast til að sjá hann og kennara hans, sýna listir sínar.

Ég vona að allri skemmti sér vel á þessarri mennignarsprengju borgarinnar okkar ... það ætla ég allavegana að gera!


Svör frá lesendum (1)

  1. Rósalind svarar:

    Já þetta verður rosa gaman.

    Við reynum að sjálfsögðu að koma að sjá ykkur líka!

    kveðaj Rósalind, Shams Al Amar

    18. ágúst 2004 kl. 20:27 GMT | #

Þessum svarhala hefur verið lokað. Kærar þakkir til þeirra sem tóku þátt í umræðunni.


 

Flakk um vefsvæðið



 

 

Yfirlit yfir þetta skjal

(Atriðin í listanum vísa á ákveðna kafla ofar á síðunni.)