Æfing í kvöld

Skrifað 25. ágúst 2004, kl. 19:04

Þessa dagana erum við á mikilli keyrslu og hausinn á okkur er að fyllast af sporum að nýju dönsunum fyrir októbersýningu Magadanshússins.

Á mánudaginn síðastliðinn var farið mjög ítarlega í "Tabla Fun 2" dansinn sem við lærðum í júlí og mun ég pikka inn skrefin að honum hér í kvöld (mjög hraður og skemmtilegur tríó-tabla-dans).

Einnig tókst okkur að sýna Josy hópdansinn sem við stelpurnar sömdum saman um daginn í hennar fjarveru ... henni leist svo vel á hann að hann verður að öllum líkindum notaður í sýningunni (kannski með smá breytingum).

Á æfingunni í kvöld lærum við svo nýjan saidi-dans ... allir eiga að mæta með létt bambusprik (ekki gömlu þungu stafina okkar!) og vonandi næ ég að skrifa hann hér inn bráðum líka. Það er langt síðan við höfum farið markvisst í þennan stíl, þannig að þetta verður spennandi tími!

Ég þarf að hlaupa út úr húsi núna til að ná á æfingu ... sjáumst hressar ... bara núna á eftir!


 

Flakk um vefsvæðið



 

 

Yfirlit yfir þetta skjal

(Atriðin í listanum vísa á ákveðna kafla ofar á síðunni.)