Heavy duty magadans framundan!
Við erum að fara að læra nýjan dans í næstu viku og hann er ekkert djók!
Josy sýndi okkur hann og við prófuðum svo að dansa hann einu sinni með henni áður en að tímanum lauk í kvöld (smá teaser) ... hann er svakalega flottur og "grand". Ég veit samt ekki hvernig ég á að fara að því að pikka hann hér inn þegar ég hef lært hann, það mun örugglega taka heila vinnuviku.
Dansinn er byggður á dansi erlends dansara (sem ég man ekki nafnið á í augnarblikinu) og er lengri og flóknari en allir dansar sem við höfum lært áður.
Vá hvað ég hlakka til að kunna þennan dans .. nú mun mig dreyma um hann á næturnar þangað til að ég hef náð honum á mitt vald!
Magadansglósur Parvönu



