Magadans hvað?

Skrifað 8. október 2004, kl. 18:50

Það er svo brjálað að gera hjá mér þessa dagana að ég næ ekki að setjast niður og skrifa niður það sem ég er að læra í magadansinum!

Í síðasta tíma sem ég komst í í þessarri viku, sömdum við í Elítuhópnum saman dans í samvinnu með Josy ... við tyrkneska eurvisionlagið frá 2003!

Annars hef ég ekki mætt vel undanfarið, er í ... ég man ekki hvað ... mörgum verkefnum núna. Mjög fjölbreyttum verkefnum, allt frá þróun á eigin fatahönnun og jurtalitunarrannsóknum útí proppsgerð fyrir upptökur á jólaþætti Latabæjar og sníðavinnu fyrir Sögusafnið ... og eitthvað fleira sem ég man ekki í augnarblikinu!

Í næstu viku verður hins vegar mikilvægt að mæta vel, en þá verður Tribal Belly Dance (TBD!) námskeiðið Á HVERJUM DEGI.

Sjáumst hressar í næstu viku. Kristína.


Svör frá lesendum (1)

  1. SONJA svarar:

    ÆÐISLEGT AÐ LESA HJÁ ÞÉR GLÓSURNAR.. ÞAÐ HJÁLPAR MÉR MIKIÐ ;) þú ert frábær

    15. október 2004 kl. 14:36 GMT | #

Þessum svarhala hefur verið lokað. Kærar þakkir til þeirra sem tóku þátt í umræðunni.


 

Flakk um vefsvæðið



 

 

Yfirlit yfir þetta skjal

(Atriðin í listanum vísa á ákveðna kafla ofar á síðunni.)