Tribal Belly Dance - indverski tíminn

Skrifað 12. október 2004, kl. 10:02

Í gær var fyrsti dagurinn í nýja Tribal Belly Dance-workshop-inu. Þessi dansstíll er samsuðustíll þar magadans er notaður í grunninn, en ofaná hann er bætt indverskum sporum, ballett, flamenco, afró, suðrænum sporum og fleira. Mikil áhersla er á indversku áhrifin í dansinum og hófst námskeiðið á indverskum dansi, sporum, hreyfingum og heitum.

Það er nú ekki auðvelt að tileinka sér riþmann í indverska dansinum þegar maður hefur svo lengi verið að læra flúraðan og imróviseraðan magadans. En það tókst þó með mikilli einbeitningu. Kennarinn okkar, Shaide Halim, er alveg yndisleg og nær vel til okkar þrátt fyrir að tala litla ensku.

Í gærkvöldi lærðum við mikið af sporum og fótahreyfingum framan af, en í kennslunni á indversku sporunum notar Shaide indversk orð og nöfn á spounum. Handahreyfingarnar eru mjög mikilvægar í dansinum og kannski það sem erfiðast var að læra í gær. Í stað þess að vera með flögrandi og mjúkar handahreyfingar áttu þær að vera stílhreynar og nákvæmar og lærðum við 48 mismunandi handatákn til að nota (alls eru þau um 600, þannig að við erum að læra sýnishorn).

Handatáknin (sem ég man í fljótubragði ... man ekki indversku nöfnin öll, set þau inn seinna):

  • með annarri hendi: fáni, þrír fánar, hálfur fáni, gjöf, hnefi, nál (3 týpur), lótusblóm, blóm (3 tegundir), blóm í hár, hálsfesti og nokkur tákn sem hafa í rauninni ekki merkingu.
  • með báðum höndum: könguló, rúm, fiskur, hreindýr, dúfa, bæn (2 týpur), krabbi, karfa, býfluga, epli, skart á hendi, eyrnarlokkar, krossa önnur tákn og nokkur tákn sem í rauninni hafa ekki merkingu.
    Svo man ég nokkur tákn sem ég man ekki hvað þýða ... úff ég þarf greinilega að fara í upprifjun!

Spor sem ég man:

  • einhverskonar grunnspor: stappa (ekki fast) með h,v,h setja svo vinstri hælinn fram, stappa svo með v,h,v, og stja næst hægri hælinn fram og halda áfram.
  • flóknari útfærsla af grunnsporinu: stappa með h,v,h, vinstri hæll fram, vinstri fótur afturfyrir þann hægri, vinstri hæll fram, vinstri fótur afturfyrir með táberg í gólfi, stíga svo í vinstra táberg, lyfta líkamanum upp (hægri fótur með), fara niður aftur (stíga í hægri fót), vinstri hæll fram ..... og endurtaka svo byrjandi á vinstri: stappa með v,h,v, hægri hæll.... (á meðan er maður sífellt að færa hendurnar til og skipta um handatákn ... erfiðara en það virtist í fyrstu!)
  • ör-hælaspor: stíga fram í hægri hæl, stíga aftur í vinstri fót, hægri fótur aftur að þeim vinstri, stíga svo til hægri með hægri hæl, stíga aftur í vinstri fót, og hægri fótur að þeim vinstri, svo er náttúrulega hægt að spegla sporinu (oft notað sem viðbót við önnur spor til að brjóta upp fótataktinn, en þetta spor er gert mjög hratt)
  • lamaði fóturinn: stappar til hægri með hægra fæti, dregur svo þann vinstri til þess hægri, stappar áfram með hægra fæti til hægri og dregur þann vinstri að ...
  • tvístappaspor: stappar með hægri fæti til hægri og svo aftur lengra til hægri, án þess að færa vinstri fót (þá förum við í dýpri stöðu), drögum svo vinstri fót að þeim hægri og setjum vinstri hæl í gólfið, getum speglað sporinu svo og stappað tvisvar til vinstri (í tímanum var þetta spor notað með ör-hælasporinu)
  • hliðarspor: þá er stigið til dæmis í hægri fót og sá vinstri krossast á bakvið og þannig fikrarst maður til hægri ... eða vinstri, það skiptir ekki máli hvor fóturinn er fyrir framan eftir því í hvaða átt maður fer. Þetta spor gerðum við svo með soldier-og camelvaríöntum (og handahreyfingum auðvitað)

Það var örugglega meira sem ég þarf bara að rifja upp ... ef einhver man eftir einhverju sem ég ekki manúr tímanum... endilega sendið mér þá línu

Eftir kennsluna í gær sýndi Shaide okkur brot úr öðrum dansinum sem við lærum ... þessi stíll er svo sjúúúúúúúúúklega flottur að það er ekkert eðlilegt, tónlistin er líka rosalega flott. Þetta er svo ótrúlega spennandi.


 

Flakk um vefsvæðið



 

 

Yfirlit yfir þetta skjal

(Atriðin í listanum vísa á ákveðna kafla ofar á síðunni.)