Tribal Belly Dance - flamenco tíminn
Það var æðislegt í tímanum í kvöld. Við lærðum einfalda týpu af flamenco og ég held að það séu margir komnir með flamenco-bakteríuna í hópnum núna.
Tíminn gekk útá að læra skrefasyrpur með viðeigandi handahreyfingum og hlaða svo smám saman alltaf fleiri syrpum aftanvið fyrstu syrpuna. Svo vorum við tvær og tvær saman í tímanum sem æfðum löngu syrpu-æfinguna á móti hvorri annarri. Við Jóhanna lentum á móti hvorri annarri og komumst á heilmikið flug í tímanum.
Ég ætla að skrifa syrpuna niður hér fyrir þá sem vilja rifja hana upp. (Ég klikkaði því miður á því að hafa með mér skriffæri í tímann, svo að ég man ekki spænsku heitin yfir skrefasyrpurnar ... verð að spurja Shaide á morgun og bæta nöfnunum inn annað kvöld.)
En fyrst koma nokkrir punktar:
- handleggir eru oftast svo til beinir í flamencoinu, hendurnar snúast við úlnliði og geta snúist í hvorn hringinn sem er, langatöng er höfð innar í lófanum en hinir fingurnir.
- í syrpuæfingunni eru hendurnar "by default" fyrir ofan höfuð
- mikilvægt er, þegar tveir eru að æfa saman að vera nálægt hvorri annarri og passa uppá að taka ekki of stór stref svo að fjarlægðin haldist og loftið á milli dansaranna sé rafmagnað ... dansararnir tveir horfast í augu allan tímann.
Syrpuæfingin
fótahreyfingar: við stöndum með hægri fót framar en þann vinstri, stígum lítið aftur með hægri (rétt afturfyrir vinstri), stígum svo vel fram með vinstri, stöppum hægra tábergi við vinstri hæl, stígum afturábak með hægri og stöppum með vinstra tábergi við hægri tær, bíðum einn takt
handahreyfingar: hendur byrja uppi (í klassískri ballettpósu), vinstri handleggur færist beinn út til hliðar og niður, svo beinn upp fyrir framan okkur og endar uppi hjá hægri hendinni sem var kjurr. báðir úlnliðir snúast á meðan og gott er að miða við ca. 3 úlnliðasnúninga í hringnum, einnig er gott að miða við að hendin sé beint fyrir framan okkur í brjóstahæð, þegar við stöppum fætinum í fyrra skiptið.
fótahreyfingar: við enduðum áðan með vinstra táberg framanvið hægri tær, nú gerum við sömu æfingu og áðan bara með vinstri: stígum lítið aftur með vinstri, stígum vel fram með hægri, stöppum vinstra tábergi við hægri hæl, stígum aftur með vinstri, stöppum hægra tábergi við vinstri tær, bíðum einn takt.
handahreyfingar: handleggur út til hliðar og upp fyrir framan okkur eins og áðan, bara með hægri handlegg, sá vinstri er kjurr uppi.
fótahreyfingar: alveg eins og í liði 1
handahreyfingar: alveg eins og í liði 1
fótahreyfingar: við enduðum áðan með vinstra táberg framanvið hægri tær, nú stíum við með vinstri fót afturfyrir þann hægri (hægri lyftist), stígum í hægri, lyftum svo vinstri fæti hátt upp framfyrir okkur (þannig að fótleggurinn myndi stóran krók fyrir framan okkur), stíga svo niður í vinstri fót, svo í þann hægri, stíga í vinstri og snúa í leiðinni í hálfhring til hægri og bíða einn takt (endum með hægri fót framar en þann vinstri eftir snúninginn).
handahreyfingar: þegar við byrjum að stíga aftur, fer hægri handleggur beint út til hliðar í axlarhæð og honum er haldið þar þar til snúningnum er lokið, þá fer hann beint upp aftur.
punktur: þetta spor er svakalega flott í æfingu með tveimur, þá í rauninni er eins og dansararnir kræki saman fótunum í loftinu og labba svo hver framhjá öðrum en snúa sér beint að hvorum öðrum aftur, augnkontakt er haldið allan tímann (maður fær gæsahúð við að dansa þetta) þetta minnir mig á virðulegan og tilfinningaþrunginn hanaslag.
fótahreyfingar: alveg eins og í liði 1
handahreyfingar: alveg eins og í liði 1
fótahreyfingar: við enduðum áðan með vinstra táberg framanvið hægri tær, nú stígum við með vinstri fót lítið afturfyrir þann hægri, svo stígum út til hægri með hægri fót, stígum vinstra fæti lítið framfyrir þann hægri, stígum svo með hægra tábergi á ská djúpt fram til hægri og halda stöðunni í einn takt (jafnvel dýpka stöðuna á meðan við bíðum)
handahreyfingar: hendur kreppast í hnefa og fara beint niður á mjaðmir og eru kjurrar þar þar til við stígum fram í hægra tábergið og bíðum, þá fer hægri handleggur í boga beint fyrir framan okkur (í solar plexus hæð) og úlnliði er snúið einusinni hægt.
fótahreyfingar: nú gerum við eins til vinstri, við enduðum áðan í djúpri stöðu með hægra tábergið í gólfinu ská framávið, nú stígum við lítið afturfyrir vinstri fót með hægra fæti, stígum út til vinstri með vinstra fæti, stígum hægra fæti lítið framfyrir vinstri fót, ofg stígum vinstra tábergi á ská djúpt fram til vinstri og halda stöðunni í einn takt.
handahreyfingar: eins og áðan eru hendur krepptar í hnefa á mjöðmum þar til við stígum djúpt í vinstra tábergið, þá fer vinstri handleggur í boga beint fyrir framan okkur og úlnliði er snúið einusinni hægt.
fótahreyfingar: alveg eins og í liði 6
handahreyfingar: alveg eins og í liði 6
fótahreyfingar: alveg eins og í liði 7
handahreyfingar: alveg eins og í liði 7
fótahreyfingar: við enduðum áðan í djúpri stöðu með vinstra tábergið í gólfinu ská framávið, nú endurtökum við lið 4 og stígum úr djúpu stöðunni með vinstra fæti og stígum honum afturfyrir þann hægri, stígum í hægri fót, lyftum þeim vinstri upp í bogann, stígum svo fram með vinstri og hægri og svo aftur með vinstri og snúum í leiðinni og bíðum einn takt.
handahreyfingar: vinstri handleggur fer beint upp og sá hægri beint út til hliðar, hann fer svo beint upp aftur að spori loknu
fótahreyfingar: alveg eins og í liði 1
handahreyfingar: alveg eins og í liði 1
fótahreyfingar: alveg eins og í liði 4
handahreyfingar: alveg eins og í liði 4
fótahreyfingar: áðan enduðum við með hægri fót fyrir framan eftir snúninginn, nú ætlum við að endurtaka þetta spor með hægra fæti, þá stígum við aftur með hægri (vinstri lyftist aðeins á meðan), stígum svo í vinstri fót, lyftum hægra fótlegg hátt upp í krókinn fyrir framan okkur, stígum svo fram í hægri fót, svo fram í vinstri fót, stígum svo fram í þann hægri og snúum í hálfhring til vinstri í leiðinni, endum með vinstri fót fyrir framan og bíðum í einn takt.
handahreyfingar: hægri handleggur fer upp og sá vinstri beint út til hliðar, hann fer svo beint upp aftur að spori loknu.
fótahreyfingar: alveg eins og í liði 4
handahreyfingar: alveg eins og í liði 4
fótahreyfingar: alveg eins og í liði 13
handahreyfingar: alveg eins og í liði 13
snúningurinn í lokin, handa-og fótahreyfingar: við enduðum í síðasta spori með vinstri fót fyrir framan og hendur beint uppi, nú förum við með vinstri handlegg beint niður, við lyftum hægra hné hátt upp (eins og til að feykja miklum pilsfaldi), á saman tíma snúast handleggir þannig að hægri handleggur fer út til hliðar og niður en sá vinstri fer upp til hliðar og beint upp, hægri fótur krossast fram fyrir þann vinstri, stígum í hann og snúum hratt í heilan hring til vinstri, á meðan förum við upp með hægri handlegg og endum teinréttar, með báða handleggi beint upp og hægri fót aðeins framar en þann vinstri.
Magadansglósur Parvönu



