Tribal Belly Dance - ballett tíminn og byrjunin á kóreógrafíunni

Skrifað 14. október 2004, kl. 11:27

Nú er kominn enn meiri hraði og kraftur í námskeiðið, bæði er Shaide farin að þekkja hópana betur og átta sig á því hvað við getum lært hratt og svo er líka meira að gerast núna þegar hún er byrjuð að sjóða dansstílana saman í kóreógrafíunni sem hún er byrjuð að kenna okkur.

Í gærkvöldi lærðum við smá í ballett, aðallega snúninga (Pirueta og Chainees) og svo byrjuðum við á kóreógrafíunni ... og það var töfrum líkast hvað þessir ólíku stílar og spor runnu vel saman hvert við annað og við magadansinn ... það var alveg með ólíkindum!

Tíminn í gærkvöldi byjaði á því að við fórum í nokkrar basic ballettæfingar og svo lærðum við fótahreyfinguna við Pirueta-balletthringina í sló-mó. Síðan fórum við að fara hraðar í hringina, og svo með handahreyfingunni (handahreyfingin eykur hraðann á hringjunum og hjálpar manni líka að halda jafnvægi!). Loks fórum við í langa halarófu þar sem að ein og ein okkar fór í hröðum Chainees-balletthringjum, horn í horn, þvert yfir salinn á svakalegum hraða. Þetta var ótrúlega gaman, aðallega vegna þess að við höfum ekki allar verið í ballett áður og það trúðu því ekki allar að þær gætu þetta yfir höfuð, áður en þær reyndu.

Shaide kenndi okkur næst nokkrar samsoðnar syrpur sem notaðar yrðu í kóreógrafíunni, ss. mjög hraða syrpan: þar sem við förum í einn hring til vinstri og endum í magadanspósu, förum svo í tvo Chainees-balletthringi til hægri með handahreyfingunni góðu, pósum í flemencopósu og tökum ballett-/flamencohringinn (Pirueta) í lokin til vinstri með viðeigandi handahreyfingu og lítilli hnélyftu... það tók sinn tíma að ná að halda jafnvægi og hraða og ná að halda í það að hugsa líka á meðan. Seinna þegar við gerðum þetta í kóreógrafíunni vorum við búnar að ná svo góðum tökum á þessarri syrpu að hún rann bara mjúklega og var meðal þess "auðvelda" í dansinum!

Ég ákvað að færa Tribal kóreógrafíuna í heild sinni í sér færslu, hún er svo fyrirferðarmikil að hún þarf sitt eigið pláss!


 

Flakk um vefsvæðið



 

 

Yfirlit yfir þetta skjal

(Atriðin í listanum vísa á ákveðna kafla ofar á síðunni.)