Laugardagur til leti (enginn magadans!)

Skrifað 16. október 2004, kl. 23:20

Það var ákveðið í fyrradag að slaufa æfingunni hjá Shaide í kvöld, bæði til að hvíla útkeyrða nemendur og leyfa Shaide að sjá eitthvað annað í Reykjavík og nágrenni en rúmið sem hún sefur í og æfingasalinn sem hún kennir í. Ég held að þetta komi sér mjög vel fyrir okkur, ég veit að það þurfa margir á hvíldinni að halda eftir þessa miklu törn áður en haldið er áfram. Mér skilst líka að við séum að læra mjög hratt, þannig að við höfum efni á fríinu!

Annars skrifaði ég þessi skilaboð inná Forumið á magadans.is í dag, ef einhver hefur ekki séð þau ennþá:

Fyrir þær sem það ekki vita, þá ætlum við að kveðja Shaide annað kvöld (sunnudagskvöld) eftir seinni æfinguna (einhverntíman uppúr kl.22). Shaide fer svo í flugið sitt kl.5 á mánudagsmorgninum, þannig að þetta verður ekki langt hóf!
Við höfum verið að velta því fyrir okkur að gefa henni fallega bók með myndum af Íslandi í kveðju-og þakkarskyni (sem kostar um 4500 kr.) og að hafa gos og fleira smálegt þarna eftir æfinguna. Ef við leggjum allar saman í púkk fyrir þessu öllu, verða það ca. 200 krónur á mann ... ráða ekki allir við það? ... koma ekki örugglega allir? Ef þig vitið um einhvern á æfingunum sem ekki veit af þessu, látið það þá endilega ganga til þeirra (á íslensku)!
Sjáumst annað kvöld, Kristína.

Ég hef ekkert meira að segja ... segi þá bara aftur:
Sjáumst annað kvöld, Kristína.


 

Flakk um vefsvæðið



 

 

Yfirlit yfir þetta skjal

(Atriðin í listanum vísa á ákveðna kafla ofar á síðunni.)