Færslur Þriðjudaginn 19. október 2004

Kl. 12:43: Hversdagslegur magadans á mánudegi 

Lokaæfing hjá Shaide í Tribaldansinum var á sunnudaginn. Þar skipti hún okkur upp í hópa og lét hvern hóp semja rúmelga 3 mínútna Tribal-dans kafla, með sporunum sem við höfðum lært hjá henni, við lag sem við þekktum ekki. Mér fannst þetta vera tilgangslaus tími og í raun algjör tímasóun, og hefði miklu frekar viljað læra eitthvað nýtt eða rifja upp það sem hún hafði farið í á vikunámskeiðinu í staðin. Kannski hugsa ég þetta bara afþví að minn hópur var afburða lélegur í að leysa og skila af sér verkefninu ... okkur fannst þetta öllum vera óþarfi. En hins vegar samdi hópurinn sem Rósana var í, svo ótrúlega flottan dans, að kannski var tíminn þess virði? ... þær eiga allavegana hrós skilið!

Eftir tímann kvöddum við Shaidu stuttlega og gáfum henni bók með fallegum myndum af íslenskri náttúru í sárabætur, en hana langaði svo að sjá eitthvað af Íslandi með eigin augum, en hafði ekki tíma! Shaide kemur þó aftur í september á næsta ári, og ætlar þá að stoppa lengur svo að henni gefist tækifæri til að skoða sig aðeins um. Hún hefur núþegar valið nokkra staði í bókinni sem við gáfum henni sem hana langar að sjá næst. Þá ætlum við stelpurnar að skiptast á að sýna henni landið okkar.

Það var rosalega skrýtið að mæta svo í venjulegan magadans aftur í gærkvöldi. Það voru greinilega ekki allir á því að fara útí veðurofsann sem geisaði upp í gær, vegna þess að tíminn minn td. var bara hálffullur. Það var hins vegar svolítill léttir að fara aftur í tíma hjá Josy og átta sig á því að dansinn er ekki alltaf eins mikil áreynsla og við höfum lagt á okkur undanfarna viku hjá Shaide ... maður var næstum búinn að gleyma því!

Nú verður hafist handa við að æfa fyrir sýninguna sem halda á í nóvember, við erum heldur betur búnar að vera duglegar að sanka að okkur þekkingu úr ýmsum áttum undanfarið og nú er kominn tími til að sýna afraksturinn.

Sjáumst á æfingum, Kristína.

Svör frá lesendum (2) | Varanleg slóð


 

Flakk um vefsvæðið



 

Færslur í október 2004

október 2004
SunMán ÞriMið FimFös Lau
          1. 2.
3. 4. 5. 6. 7. 8. 9.
10. 11. 12. 13. 14. 15. 16.
17. 18. 19. 20. 21. 22. 23.
24. 25. 26. 27. 28. 29. 30.
31.            
 

 

Yfirlit yfir þetta skjal

(Atriðin í listanum vísa á ákveðna kafla ofar á síðunni.)