Sambatími!
Í kvöld kom Josy okkur rækilega á óvart og kenndi okkur Samba-dans. Við höfum farið í Samba af og til, við höfum lært grunnsporin og Josy hefur notað dansinn til að losa um okkur þegar hópurinn festist í gömlu fari, svo hefur hún líka oft notað hann til að hita okkur upp í byrjun tíma eða eftir rólegar æfingar, þegar á að verða fjör. En eins og flestir vita, er Josy frá Brasilíu og þar kunna börn að dansa Samba áður en þau ganga!
Enginn átti von á því að fara að læra heilan Sambadans í kvöld, og brá okkur heldur í brún þegar Josy sagði að við værum orðnar svo færar í Sambanu að hún hefði búið til pláss fyrir það í Nóvembersýningunni!!! Mér sýnist að þetta verði í alla staði fjörug, fjölbreytt og skemmtileg sýning hjá okkur.
Ég mun skrifa dansinn hér inn seinna í kvöld eða á morgun þegar ég hef náð andanum betur.
Nú er að passa sig að rugla þessu ekki öllu saman! Kristína.
Magadansglósur Parvönu



