Magadansafmæli
Nú er allt á fullu í Magadanshúsinu vegna sýningarinnar í Nóvember. Það verður gaman að sjá þetta allt smella saman á síðustu dögunum, en enn eru hóparnir að æfa með Josy hver í sínu lagi, að læra, æfa og fínpússa sína dansa.
Elítuhópurinn er að semja mjög krúttlegt atriði með Josy þessa dagana fyrir sýninguna. Ég gæti kallað það "krúttlegan folk-tabla dans", en ég veit ekki hvort það nær áhrifunum alveg. Við hlæjum okkur allavegana alveg máttlausar við að semja hann ... ég veit ekki hvort við náum að skila þeim áhrifum til áhorfenda, eða hvort það sé sniðugt?
Eftir æfinguna í gærkvöldi héldum við litla og huggulega afmælisveislu í tilefni þess að Magadanshúsið er orðið 1 árs!
Magadansglósur Parvönu



