Long time, no bellydance!

Skrifað 1. mars 2005, kl. 02:29

Jæja, nú er ég að verða orðin svolítið þreytt á þessum endalausu lokatörnum sem ég er í í öllum vinnunum mínum, en þeirri síðustu á að ljúka á miðvikudaginn næsta klukkan 15, þegar að Sögusafns-víkingarnir verða ferjaðir um borð í stórt skip og sendir til Noregs ... þá einfaldlega get ég ekki unnið meira í því verkefni! Eftir þetta verkefni kemur náttúrulega annað, en ég er að fara að reyna fyrir mér sem sjálfstætt stafrandi textíl-og fatahönnuður á næstunni og er einmitt svo heppin að vera komin með pláss í virtri lítilli hönnunarbúllu í miðbænum í vor. Það er alltaf langt frá því að vera rólegt hjá mér!

En von bráðar get ég farið að stunda magadansinn aftur af einhverri alvöru (mér gengur voða illa að æfa mikið ein heima ... maginn minn er einmana!) ... vonandi bara á miðvikudaginn!!!

Mér skilst að á þessum tveimur mánuðum sem ég hef misst úr, hafi verið æfðir fullt af dönsum fyrir aprílsýningu Magadanshússins ... ég held að ég þurfi að taka á honum stóra mínum og æfa stíft til að ná þessu upp og fá að vera með í sýningunni! Það verður örugglega ekkert mál að koma sér í gang aftur.

Svo þegar ég er komin í gang, langar mig til að kíkja kannski á námskeið hjá einhverjum gestakennaranum í Kramhúsinu til að krydda uppá dansinn hjá mér. Það gæti verið skemmtilegt að prófa eitthvað nýtt með þessu gamla, góða. Sjáum til hvort ég hafi ekki tíma til þess í vor, eða sumar ... æ, það er svo margt sem mig langar til að gera, listinn er endalaus!

Sjáumst í dansinum á næstunni, Kristína.


Þessum svarhala hefur verið lokað. Kærar þakkir til þeirra sem tóku þátt í umræðunni.


 

Flakk um vefsvæðið



 

 

Yfirlit yfir þetta skjal

(Atriðin í listanum vísa á ákveðna kafla ofar á síðunni.)