Færslur fimmtudaginn 3. mars 2005

Kl. 11:23: Gott að dansa 

Það er svo gott að vera komin aftur í dansinn. Þó að ég hafi ekki verið mikið að dansa í gær, aðallega að skrifa, þá er ég komin á fullt í hausnum ... nú get ég æft heima alveg leikandi létt afþví að ég er komin í dansinn aftur.

Það var svo frábært að koma í Magadanshúsið í gærkvöldi, andrúmsloftið var svo gott og jákvætt ... mér líður bara eitthvað svo vel þarna. Stundum veit maður ekki hvers maður saknar fyrr en maður fær það aftur í hendurnar!

Allavegana er ég mjög spennt og full af magadanskrafti ... innra með mér.

Sjáumst aftur á mánudaginn.

Sendu þitt svar | Varanleg slóð

Kl. 11:01: Ruslana-dansinn

Ég mætti á æfingu í gærkvöldi í fyrsta skipti í tvo mánuði, og nú er heldur betur fjör, það var allt á fullu í undirbúningnum undir sýninguna í apríl. Stelpurnar náðu "bara" að sýna mér þrjá af þeim dönsum sem þær hafa lært síðan ég mætti síðast. Ég ákvað að koma mér vel fyrir á púða í tímanum og skrifa niður þann fyrsta, Ruslana-dansinn, en í næsta tíma skal ég ná honum! ... Lesa meira


 

Flakk um vefsvæðið



 

Færslur í mars 2005

mars 2005
SunMán ÞriMið FimFös Lau
    1. 2. 3. 4. 5.
6. 7. 8. 9. 10. 11. 12.
13. 14. 15. 16. 17. 18. 19.
20. 21. 22. 23. 24. 25. 26.
27. 28. 29. 30. 31.    
 

 

Yfirlit yfir þetta skjal

(Atriðin í listanum vísa á ákveðna kafla ofar á síðunni.)