Gott að dansa

Skrifað 3. mars 2005, kl. 11:23

Það er svo gott að vera komin aftur í dansinn. Þó að ég hafi ekki verið mikið að dansa í gær, aðallega að skrifa, þá er ég komin á fullt í hausnum ... nú get ég æft heima alveg leikandi létt afþví að ég er komin í dansinn aftur.

Það var svo frábært að koma í Magadanshúsið í gærkvöldi, andrúmsloftið var svo gott og jákvætt ... mér líður bara eitthvað svo vel þarna. Stundum veit maður ekki hvers maður saknar fyrr en maður fær það aftur í hendurnar!

Allavegana er ég mjög spennt og full af magadanskrafti ... innra með mér.

Sjáumst aftur á mánudaginn.


Þessum svarhala hefur verið lokað. Kærar þakkir til þeirra sem tóku þátt í umræðunni.


 

Flakk um vefsvæðið



 

 

Yfirlit yfir þetta skjal

(Atriðin í listanum vísa á ákveðna kafla ofar á síðunni.)