Habibi ya eini

Skrifað 2. mars 2006, kl. 18:49

Dýrleif var að senda á mig elítu-dansinn "Habibi ya eini" ... gjöriði svo vel kæru magadansmeyjar:

Bíða í 8 fyrstu taktana og snúa baki í áhorfendur

  1. Maja hægri vinstri – tvisvar hægt og fjórum sinnum hratt – upp til hliðar með hægri hendina á fyrstu tveimur og snake-arms á hinum fjórum, vinstri hendi erfallega meðfram hinni hliðinni.
  2. Sama og 1. nema hægri hendin er enn út til hliðar og vinstri hendin fer upp á fyrstu tveimur og snake-arms á hinum fjórum.
  3. Maja eins og í 1. og 2. – nú fara hendurnar alveg upp á fyrstu tveimur og eru kyrrar uppi á fyrstu tveimur og snake-arms á hinum fjórum.
  4. Líta til vinstri yfir öxl með vinstri hendi á mjöðm og hægri upp við hárið á einum, endurtekið en nú til hægri og hendur öfugt við hitt á tveimur, snúa sér í tæpa þrjá (þrjá) hringi með hendur út til hliðar og stoppa til hliðar – snúa til hægri – fjórir hraðir taktar.
  5. Tylla í með vinstri tá, hægri hendi beint upp og vinstri í hálfan hring að neðan og upp aftur á bak, hægri hendi er uppi, á meðan er gerður hálfhringur fram með mjöðm – farið eftir taktinum í laginu.
  6. Fjórir hraðir taktar átta fram með hendur upp – byrja vinstra megin, síðan þrír hraðir taktar snake-arms og halla sér aftur á bak – tveir aftur, einn fram, snúa í hina áttina á fjórða taktinum og endurtaka átturnar og snake-arms í þá átt.
  7. Vinstri hendi upp og hægri fram, niður með hægri mjöðm þrisvar eftir taktinum, hendur út til hliðar, snúa fram, soldier þrisvar eftir takti – hægri vinstri hægri og snúa strax á hlið til hægri.
  8. Hægri hendi upp og vinstri fram, niður með hægri mjöðm þrisvar eftir taktinum, hendur út til hliðar, snúa fram, soldier sjö sinnum eftir takti – hægri vinstri o.s.frv. horfa aðeins niður á við á meðan.
  9. Hendur út til hliðar með lófana upp, stíga aftur með hægri, tvö hröð camel, stíga aftur með vinstri, tvö hröð camel (bros spor) – hendur enn til hliðar en lófar nú niður, shimmie hægri, vinstri, hálfur hringur aftur frá hægri til vinstri með mjaðmirnar, aðeins beygð hné. Allt endurtekið.
  10. Gengið til hægri með hendurnar saman til hægri, fyrst stigið í hægri með vinstri mjöðm upp sem fer svo niður með shimmie þegar stigið er í þann fót og endurtekið án shimmie.
  11. Standa kyrr með hendur uppi og saman, lófa út, sem fara í lítinn hring, þrýsta þeim aðeins fram í takt við mjaðmir, hálfur mjaðmahringur með shimmie sem endar á að hægri mjöðm fer niður, allt endurtekið.
  12. Atriði 10. endurtekið nema nú til vinstri.
  13. Atriði 11. endurtekið alveg eins.
  14. Stór hringur til vinstri sem endar þannig að staðið er í vinstri fót og tyllt í hægri, smá hopp og hendur fara beinar upp að aftan og alveg upp.
  15. Báðar hendur niður, vinstri alveg en hægri til hliðar, hægra hné upp og stigið út til hliðar í fótinn.
  16. Báðar hendur til hliðar og alveg upp og niður aftur, hægra hné aftur upp og að líkamanum og svo stigið aftur til hliðar á sama stað.
  17. Hendur til hliðar og alveg upp, hægra hné dregið rólega að líkamanum (staðið á öðrum fæti).
  18. “Arabesque” - Ganga þrjú skref í smá sveig til vinstri, hægri fótur fyrst og sparka vinstri fæti út til hliðar, sömu skref til hægri og byrjað á vinstri fæti, hendur út til hliðar og þeirri hendi snúið lítillega sem er utar þegar sparkið er.
  19. Snúningur á staðnum, hendur fara saman með fingurna á undan að ofan og niður á meðan.
  20. Fjögur skref með maja aftur á bak, hendur fara að ofan og beint fram miðja vegu.
  21. Atriði 18. endurtekið eins.
  22. Atriði 19. endurtekið eins.
  23. Hendur uppi, fjögur maja á staðnum, hægri fyrst.
  24. Tvö “egg”-spor frá hægri fyrst. Snúið á staðnum (gengið) heilan hring á fjórum maja, snúa höndunum mjúklega til hliðar við mjaðmirnar, endurtekið.
  25. Gengið fram tvö “egg”-spor, tyllt í hægri fót fram, tvö camel með shimmie, gengið aftur tvö “egg”-spor, tyllt í hægri fót fram, tvö camel með shimmie.
  26. Hægri hendi ská til hliðar og vinstri upp, létt spor til hægri, vinstri fótur kyrr, hægri til hliðar, fram, aftur, síðasta sporið er hné upp að líkamanum og maganum kippt inn.
  27. Gengin þrjú létt spor til vinstri í hring og endað á maginn inn í fjórða.
  28. Atriði 26. endurtekið nema núna í hina áttina, til vinstri – spegilmynd.
  29. Baki snúið í áhorfendur vinstri hendi upp og hægri til hiðar, horft yfir öxl og eitt basic egypt + kick spor, snúa í hina áttina með hendur saman fyrir framan og höfuðsveiflu, endurtekið þrisvar í viðbót í sitt hvora áttina.
  30. Tvista fram til hægri í hring átta takta, snúa svo við og tvista til vinstri fjóra takta, snúa aftur og tvista til hægri fjóra takta, önnur hendi niðri – sú átt sem farið er í – og hin uppi.
  31. Stíga aftur í vinstri fót til vinstri með hendur út til hliðar, stíga aftur í hægri fót til hægri með hendur út til hliðar, snúast í rólegan hring á tveimur stórum húlahringjum.
  32. Tvö spor fram með axlashimmie, hægri vinstri – tvö spor, hægri fram, vinstri aftur með shimmie, tvö spor aftur með axlashimmie, hægri vinstri – tvö spor, hægri aftur, vinstri fram með shimmie.
  33. Tvö soldier hratt til hægri með vinstri hendi beint upp og hægri við mjöðm – fylgja hreyfingu hennar, shimmie á einum takti og bylgja upp með höfuðhnykk á öðrum, endurtekið á sama hátt til vinstri – speglað.
  34. Aftur á bak soldier hægri, soldier vinstri, shimmie á staðnum, fara fram soldier vinstri, soldier hægri, shimmie alveg niður á hækjur, hægri og vinstri mjöðm fram og niður til skiptis sex sinnum á leiðinni upp, hendurnar saman fyrir framan, snúa á sjö og “pósa” á undan átta = snúa á hlið til hægri með hægri fót dregin upp að vinstra hné, hægri hendi á mjöðm og vinstri aftan við hnakkann.
  35. Ganga fram á shimmie með hægri hlið fram fjögur lítil skref – nú er hægri hendi í lausu lofti rétt við mjöðmina, einn hálfhringur fram með hægri hendi á mjöðm, - snúa á fjórum í öfuga átt með vinstri hlið fram – fyrri hlutinn endurtekinn en á síðasta takti er snúið fram og klappað tvisvar með laginu.
  36. Hendur út til hliðar með lófana upp, stíga aftur með hægri, tvö hröð camel, stíga aftur með vinstri, tvö hröð camel (bros spor) – hendur enn til hliðar en lófar nú niður, shimmie hægri, vinstri, stór hringur aftur til vinstri og líkaminn fer alveg með, aðeins niður að framan og snúið ¼ úr hring til vinstri.
  37. Hendur út til hliðar með lófana upp, stíga aftur með vinstri, tvö hröð camel, stíga aftur með hægri, fram með hægri, shimmie hægri, vinstri, stór hringur aftur til vinstri og líkaminn fer alveg með, aðeins niður að framan og snúið ¼ úr hring til vinstri. Þetta er endurtekið tvisvar í viðbót.
  38. Strax stór rólegur hringur á staðnum sem endar þannig að staðið er í vinstri fót og tyllt í hægri, hendur fara beinar upp að aftan og alveg upp, hika aðeins með taktinum í laginu.
  39. Báðar hendur niður, vinstri alveg en hægri til hliðar, hægra hné upp og stigið út til hliðar í fótinn.
  40. Báðar hendur til hliðar og alveg upp og niður aftur, hægra hné aftur upp og að líkamanum og svo stigið aftur til hliðar á sama stað.
  41. Hendur til hliðar og alveg upp, hægra hné dregið rólega að líkamanum (staðið á öðrum fæti).
  42. Stigin lítil skref með shimmie fram og til baka með hægri hlið að áhorfendum þannig að við hreyfumst úr stað fram á við – fjórum sinnum með hægri – hendurnar eru beint uppi og hreyfast aðeins upp og niður með taktinum.
  43. Gengið til hægri út á hlið (krossað) á þremur töktum og v. fótur upp að h. hné á fjórða, hendur út til hliðar, endurtekið þrisvar í viðbót til vinstri, hægri vinstri.
  44. Tvista fram til hægri í hring átta takta, snúa svo við og tvista til vinstri fjóra takta, snúa aftur og tvista til hægri fjóra takta, hendur niður, flatir lófar í átt að gólfi og hendurnar hreyfast á móti mjaðmahreyfingunni.
  45. Stíga aftur í hægri fót til vinstri með hendur út til hliðar, stíga aftur í hægri fót til vinstri með hendur út til hliðar, snúast í rólegan hring á tveimur stórum húlahringjum.
  46. Tvö spor fram með axlashimmie, hægri vinstri – tvö spor, hægri fram, vinstri aftur með shimmie, tvö spor aftur með axlashimmie, hægri vinstri – tvö spor, hægri aftur, vinstri fram með shimmie, endurtekið.
  47. Shimmie til hliðar (tveir hópar í sitthvora átt) fimm skref, magann inn á sex og til baka, endurtekið eins.
  48. Átta snake-arms niður á hækjur.
  49. Sitja á hækjum með hendurnar saman uppi, hægri mjöðm gerir hringi, fjóra á staðnum og fjóra á leiðinni upp.
  50. (Hópur 1 – 2 bíður) Soldier hægri vinstri hægri, shimmie bylgja upp með höfuðhnykk, hendurnar enn uppi.
  51. (Hópur 2 – 1 bíður) Soldier hægri vinstri hægri, shimmie bylgja upp með höfuðhnykk, hendurnar enn uppi.
  52. Hendur út, axla-shimmie niður á fjórum og upp aftur á fjórum.
  53. Endurtekið atriði 18 – 23. “Arabesque”
  54. “Egg”-sporið tvisvar í hverja átt og einu sinn í viðbót fram.
  55. Snake-arms og maja sex sinnum niður og sex sinnum upp með hendurnar út til hliðar.
  56. Hendur beint upp með hendur saman, fjögur camel með shimmie ská til vinstri og fjögur ská til hægri.
  57. Snúa í fallegan rólegan hring til vinstri, enda aðeins á ská til vinstri og pósa = lyfta höndunum múklega að neðan, aftur og upp með sveigt bak

 

Flakk um vefsvæðið



 

 

Yfirlit yfir þetta skjal

(Atriðin í listanum vísa á ákveðna kafla ofar á síðunni.)